Marc McAusland spáir í leiki dagsins á HM

Marc McAusland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

McAusland spáir því að McGinn skori fyrir Skota.

Mynd: EPA

Þýskaland mætir Curacao.

Mynd: EPA

Marc McAusland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er rosalegur dagur framundan á heimsmeistaramótinu en við fáum fimm leiki næsta sólarhringinn.
Marc McAusland, leikmaður Víðis í Garði, er kominn til Boston að fylgjast með sínum mönnum í skoska landsliðinu sem hefja leik á mótinu núna klukkan 01:00. Við fengum hann til að spá í leiki dagsins á mótinu.

Haítí 0 - 2 Skotland (01:00 í nótt)
Ég er nokkuð rólegur yfir þessu og tel að Skotar klári verkefnið. Lawrence Shankland skorar af stuttu færi og John McGinn tryggir svo stigin þrjú með marki eftir um 80 mínútur.
Ástralía 1 - 2 Tyrkland (04:00 í nótt)
Socceroos-liðið kemst snemma yfir fyrir tilstilli Martin Boyle, en ég held að Tyrkirnir verði einfaldlega of sterkir á endanum og snúi leiknum sér í vil. Arda Güler skorar sigurmarkið í 2-1 sigri.
Þýskaland 4 - 0 Curacao (17:00 um daginn)
Þjóðverjar verða einfaldlega of öflugir fyrir Curacao. Jamal Musiala opnar markareikninginn og þetta gæti jafnvel orðið stærri sigur ef Þjóðverjar ná snemma forystu.
Holland 2 - 2 Japan (20:00 um kvöldið)
Maeda mun skora fyrir Japan og Denzel Dumfries verður á skotskónum fyrir Holland.
Fílabeinsströndin 2 - 2 Ekvador (23:00 um kvöldið)
Ég á von á opnum og skemmtilegum leik þar sem bæði lið sækja til sigurs. Amad Diallo á góðan leik og skorar eitt af mörkum Fílabeinsstrandarinnar í jafnteflinu.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!