Fotbolti.net
13.06.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja meira en 60 milljónir fyrir Vuskovic

Vilja meira en 60 milljónir fyrir Vuskovic
Canon

Mynd: EPA

Brighton og Tottenham hafa mikinn áhuga á miðvörðum hvors annars og gætu félagaskipti átt sér stað í sumar.
Tottenham hefur verið að reyna að kaupa Jan Paul van Hecke, 26 ára, úr röðum Brighton þar sem Hollendingurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi, en Brighton er sagt vilja fá 50 milljónir punda fyrir.

Að sama skapi er Brighton að reyna að kaupa Luka Vuskovic, 19 ára miðvörð Tottenham sem lék á láni hjá Hamburger SV á síðustu leiktíð. Brighton lagði fram 30 milljón punda tilboð en Tottenham er talið vilja fá meira en 60 milljónir fyrir ungstirnið sitt.

Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá þessu og segja að bæði Van Hecke og Vuskovic séu búnir að gefa munnlegt samþykki fyrir félagaskiptum. Vuskovic er þó með fjögur ár eftir af samningi og hefur vakið stórliða víðsvegar um Evrópu.

Tottenham er talið vera opið fyrir að skipta á miðvörðunum ef félagið getur grætt um 20 milljónir punda á milli.

Brighton ætlar að kaupa Vuskovic af Tottenham
TENGT EFNI

Brighton ætlar að kaupa Vuskovic af Tottenham

Vilja meira en 60 milljónir fyrir Vuskovic
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.