Heimir Guðjóns: Mér fannst hann ráða úrslitum í þessum leik

Heimir Guðjónsson - þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson - þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins en þeir sigruðu Gróttumenn 4-2 á Tekk-vellinum í Árbæ í dag. Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis var ánægður með leik sinna manna.
"Mér fannst við byrja vel, hugarfarið var gott en við vorum klaufar í lok fyrri hálfleiks en við sýndum karakter og komum til baka. Við fengum mikið af góðum færum í þessum leik, reyndar fengu Grótta líka tvö góð færi í stöðunni 1-0 en heilt yfir var þetta sanngjarnt."

"Mér fannst Aron Snær Guðbjörnsson ráða úrslitum í þessum leik. hann var ótrúlega öflugur varnarlega og sóknarlega, það hjálpaði til. Svo var þetta bara góð liðsframmistaða sem kannski hefur vantað í síðustu tveimur leikjum."
"Stuðningurinn var geggjaður hér í dag. Það er frábært veður og frábær stemning eins og er búin að vera hérna á Fylkisvellinum og stuðningsmennirnir eiga þakkir skildar fyrir þennan stuðning sem þeir hafa sýnt okkur í sumar. "
"Við stefnum á að koma okkur í úrslitaleikinn, það er byrjun. Afturelding er andstæðingurinn, við töpuðum illa fyrir þeim síðast á útivelli þannig að við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir þann leik." sagði Heimir Guðjónsson
Allt viðtalið við Heimi er að finna í spilaranum hér að ofan