Andrea Rán: Held ég geti talið það á annarri hendi hvað ég eigi mörg

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fyrirliði FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fyrirliði FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara glöð að hafa klárað leikinn“ sagði Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fyrirliði FH, eftir 2-5 sigur á Víkingi í Fossvogi í dag.
„Mér fannst við halda vel í boltann en þegar við gerðum það ekki vorum við að tapa honum á hættulegum svæðum og eins og við sáum bara í dag, Víkingarnir refsuðu vel. Um leið og við ákváðum að vera kærulausar að þá voru þær að refsa og þær hefðu getað skorað fleiri mörk og sama með okkur við hefðum getað skoðað fleiri,“ hélt hún áfram.
FH virðist hafa fundið fullkomna blöndu fyrir leikmannahópinn sinn af ungum og efnilegum leikmönnum með reynslumeiri leikmönnum eins og Andreu. Aðspurð hvernig hún metur hópinn hjá þeim segir hún:
„Ég held að þetta sé eiginlega fullkomin blanda að vera akkúrat með svona margar ungar og það bara svona „keeps me young“ fyrir þær sem að eru eldri. Maður nær að hanga með þeim.“
Andrea skoraði líklega eitt af mörkum tímabilsins þegar hún smurði boltann í samskeytin af 30 metrunum en viðbrögð hennar við markinu vöktu eiginlega frekar athylgi undirritaðrar vegna þess hversu hissa hún var á þessu slútti. Á hún ekki mörg svona mörk á ferlinum?
„Nei, veistu, ég held að ég geti talið það á annari hendi hvað ég eigi mörg.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






