Fotbolti.net
13.07.05 - 06:23
Magnús Már Einarsson

Hleb til Arsenal (Staðfest)

Hleb til Arsenal (Staðfest)
Canon
Alexander Hleb hefur fengið atvinnuleyfi á Englandi og hefur því gengið til liðs við Arsenal frá Stuttgart. Hleb sem er 24 ára Hvít-Rússi mun væntanlega kosta Arsenal 10 millójinr punda.
Hleb hefur verið hjá Stuttgart undanfarin fimm ár og leikið alls 137 leiki fyrir liðið í Bundesligunni. Hann hefur gert langtímasamning við Arsenal en félagið vildi ekki þó ekki segja hversu langur samningurinn er.

Arsene Wenger stjóri Arsenal hefur lengi verið aðdáandi Hleb og hann greip tækifærið og samdi við kappann þegar að Wenger var í Þýskalandi að lýsa Álfukeppninni á franskri sjónvarpsstöð.

Hleb sem á 18 landsleiki að baki fyrir Hvít-Rússa er ánægður með að fara til Arsenal en hann sagði: ,,Ég er mjög glaður að fá þetta frábæra tækifæri til að fara til Arsenal. Það er félag með frábærri sögu og mörgum heimsklassaleikmönnum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.