Fotbolti.net
13.07.05 - 07:28
Magnús Már Einarsson

Romeo til Osasuna (Staðfest)

Romeo til Osasuna (Staðfest)
Canon
Argentínski framherjinn Bernardo Romeo hefur gengið til liðs við spænska liðið Osasuna frítt frá þýska liðinu Hamburg. Romeo sem er 27 ára lék með Mallorca á láni á síðari hluta síðustu leiktíðar en honum gekk illa hjá liðinu og lék aðeins 10 leiki með liðinu.
Romeo sagði á blaðamannafundi í gær: ,,Ég hafði nokkur tilboð frá öðrum löndum en ég valdi Osasuna því ég hef ennþá bragð í munninum eftir fyrstu leiktíð mína á Spáni. Ég er ákveðinn í að ganga vel í þessari deild.

Vegna nokkurra ástæðna gat ég ekki spilað eins mikið og ég vildi (hjá Mallorca), en það er í fortíðinni og nú byrja ég á nýjum áfanga. Ég er mjög ánægður með að vera hér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.