Fotbolti.net
13.07.05 - 15:42
Magnús Már Einarsson

Dalmat til Racing (Staðfest)

Dalmat til Racing (Staðfest)
Canon
Franski miðjumaðurinn Stephane Dalmat hefur gert fjögurra ára samning við spænska liðið Racing Santander. Dalmat sem er 26 ára kemur til liðsins frá Inter en hann var ekki í framtíðarplönum ítalska liðsins.
Dalmat sem hefur leikið með frönsku liðunum Châteauroux, Lens, Marseille og PSG fór til Inter árið 2000 en hann var lánaður til Tottenham tímabilið 2003/2004.

Hann lék ágætlega með enska liðinu en það keypti hann ekki og nú er Dalmat kominn til Spánar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.