13.07.05 - 16:06
Magnús Már Einarsson
Pancaro til Fiorentina (Staðfest)

Pancaro fer úr að ofan.


Pancaro fer úr að ofan.

Varnarmaðurinn reyndi Giuseppe Pancaro hefur gert tveggja ára samning við Fiorentina. Pancaro sem er 33 ára var látinn fara frá AC Milan í vor og þessi fyrrum ítalski landsliðsmaður ákvað að semja við Fiorentina liðið.
Fiorentina rétt bjargaði sér frá falli í vor en Pancaro er þriðji sterki leikmaðurinn sem liðið fær í sumar en markvörðurinn Sebastien Frey er kominn á láni frá Parma og miðjumaðurinn Stefano Fiorea á láni frá Valencia.
