13.07.05 - 16:38
Magnús Már Einarsson
Real Madrid lánar Borja til Mallorca (Staðfest)

Borja í baráttu við Zidane á æfingu.


Borja í baráttu við Zidane á æfingu.

Real Madrid hefur lánað miðjumanninn Borja Fernandez til Real Mallorca. Borja sem er 24 ára lék átta leiki með Real í La Liga á síðustu leiktíð en í lánssamningi hans er klásúla þess efnis að hann megi ekki spila með Mallorca gegn Real.
Hægri bakvörðurinn Alvaro Arbeloa, miðjumaðurinn Ruben de la Red og markvörðurinn Diego Lopez hafa allir framlengt samning sinn við Real til ársins 2009 en þessi fyrrum leikmenn unglingaliðs félagsins voru áður með samning til ársins 2007.
