Southampton hefur gengið frá kaupum á danska varnarmanninum Jannik Vestergaard.
Vestergaard kemur frá Gladbach í Þýskalandi á átján milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli Vestergaard er stór og stæðilegur miðvörður en hann er tæpir tveir metrar á hæð.
Vestergaard var í danska landsliðshópnum á HM í Rússlandi en kom ekki við sögu.
Vestergaard er fjórði leikmaðurinn sem Southampton kaupir í sumar á eftir Angus Gunn, Mohamed Elyounoussi og Stuart Armstrong. Elyounoussi kom frá Basel, Armstrong kom frá Celtic og markvörðurinn Gunn kom frá Manchester City í vikunni.
Welcome to #SaintsFC, @JVestergaard7! 👊 pic.twitter.com/TlWF8fxR9D
— Southampton FC (@SouthamptonFC) July 13, 2018
Athugasemdir