Fotbolti.net
13.07.26 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Segja Pirlo líklegastan til að taka við ítalska landsliðinu

Andrea Pirlo gæti tekið við ítalska landsliðinu

Andrea Pirlo gæti tekið við ítalska landsliðinu

Canon

Mynd: EPA

Andrea Pirlo, sem varð heimsmeistari með Ítalíu árið 2006, er talinn líklegastur til þess að taka við sem þjálfari landsliðsins. Þetta segir Gazzetta dello Sport.
Pirlo er einn besti miðjumaður í sögu fótboltans, en það er líklega of snemmt að segja til um hvort hann muni ná sömu hæðum í þjálfun.

Hann hóf þjálfaraferilinn hjá unglingaliðum Juventus áður en hann tók við aðalliðinu eftir að Maurizio Sarri var rekinn. Juventus varð bikarmeistari undir hans stjórn og vann einnig Ofurbikarinn.

Tímabilið eftir náði liðið ekki að berjast um deildarmeistaratitilinn, en Pirlo kom því í Meistaradeildina. Um vorið var hann síðan látinn fara og hefur flakkað nokkuð síðustu ár.

Ítalinn stýrði Fatih Karagumruk í Tyrklandi, en hætti eftir eitt tímabil og tók síðan við Sampdoria sem hafði fallið niður í B-deildina á Ítalíu. Liðið hafnaði í 7. sæti undir hans stjórn, en hann var rekinn eftir aðeins þrjár umferðir á öðru tímabili sínu.

Pirlo hefur síðasta árið þjálfað Dubai United í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Það er spennandi verkefni hjá félagi með moldríka eigendur. Hann tók við liðinu í B-deildinni og kom því upp á fyrsta tímabili, auk þess sem liðið komst í undanúrslit Forsetabikarsins.

Gazzetta dello Sport segir Pirlo líklegastan til að taka við ítalska landsliðinu eftir að Gennaro Ivan Gattuso hætti með liðið þegar Ítölum mistókst að komast á heimsmeistaramótið.

Búið er að stokka upp í stjórnendastöðum hjá sambandinu. Giovanni Malago tók við sem forseti ítalska fótboltasambandsins í sumar og hefur ráðið Paolo Maldini sem tæknilegan stjórnanda. Leonardo mun starfa með honum, en Maldini var áður yfirmaður íþróttamála hjá AC Milan og Leonardo gegndi sama starfi hjá PSG.

Pirlo er góðvinur Maldini eftir að þeir spiluðu saman hjá bæði Milan og ítalska landsliðinu.

Antonio Conte, sem hætti hjá Napoli á dögunum, er einnig orðaður við stöðuna, en það yrði í annað sinn sem hann myndi taka við landsliðinu eftir að hafa stýrt því áður frá 2014 til 2016. Pep Guardiola er þá nafn sem hefur komið oft upp í umræðunni, en hann yfirgaf Manchester City í sumar eftir tíu ára dvöl.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.