Fotbolti.net
13.07.26 - 20:13
Brynjar Ingi Erluson

Trossard til Besiktas - „Here we go!“

Trossard til Besiktas - „Here we go!“
Canon

Mynd: EPA

Belgíski leikmaðurinn Leandro Trossard er á leið til tyrkneska stórveldisins Besiktas frá Englandsmeisturum Arsenal. Fabrizio Romano hefur sett „Here we go!“ á skiptin.
Trossard hefur átt í viðræðum við Besiktas síðustu vikur og fyrir aðeins nokkrum dögum var greint frá samkomulagi milli tyrkneska félagsins og Arsenal.

Besiktas greiðir Arsenal 20 milljónir evra fyrir Trossard, þar af tvær milljónir í árangurstengdar greiðslur.

Leikmaðurinn hefur einnig náð samkomulagi við Besiktas og er nú á leið til Istanbúl í læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning við félagið.

Trossard, sem er 31 árs, kom til Arsenal frá Brighton árið 2023 og hefur átt stóran þátt í uppgangi liðsins síðustu ár. Hann hefur verið nokkurs konar költhetja hjá stuðningsmönnum Arsenal með mikilvægum mörkum sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.