Fotbolti.net
13.07.26 - 18:25
Gylfi Már Þórðarson

Byrjunarlið Breiðabliks og Keflavíkur - Ein breyting Blika

Kópavogsvöllur

Kópavogsvöllur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 taka heimamenn í Breiðabliki á móti Keflvíkingum á Eikarvellinum í Kópavogi. Búast má við hörkuleik en liðin skildu jöfn í fyrri leik liðanna. Byrjunarliðin má finna hér að neðan.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Keflavík
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, gerir eina breytingu á sínu liði. Dagur Örn Fjeldsted sem átti góðan leik gegn ÍA í síðustu umferð þarf að gera sér það að góðu að setjast á bekkinn. Í liðið í hans stað kemur Jónatan Guðni Arnarsson.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir enga breytingu á byrjunarliði síns liðs sem sigraði KR í síðustu umferð.

Byrjunarlið Breiðablik

Anton Ari Einarsson, Ásgeir Helgi Orrason, Ívar Örn Árnason, Arnór Gauti Jónsson, Viktor Karl Einarsson (fyrirliði), Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson, Viktor Örn Margeirsson, Jónatan Guðni Arnarsson, Gabríel Snær Hallsson, Arnar Bjarki Gunnleifsson

Byrjunarlið Keflavík

Ásgeir Orri Magnússon, Davíð Helgi Aronsson, Sindri Snær Magnússon (fyrirliði), Þorlákur Breki Þ. Baxter, Stefan Alexander Ljubicic, Muhamed Alghoul, Anton Kralj, Marin Mudrazija, Marin Brigic, Alpha Conteh, Ásgeir Páll Magnússon

Dagur Örn byrjar á bekknum í dag

Dagur Örn byrjar á bekknum í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.