Keane og Alf Inge enn í erjum - „Sérð leikinn öðruvísi þegar þú ert í glasi“

Roy Keane þolir ekki Alf Inge og hefur ekki gert í 30 ár

Mynd: EPA

Alf Inge Haaland

Mynd: EPA

Erling hefur einnig mátt þola mikla gagnrýni frá Keane

Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United á Englandi, skaut aðeins á erkióvin sinn, Alf Inge Haaland, eftir leik Englands og Noregs í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Þeir tveir hafa lengi eldað grátt silfur saman. Það hófst allt árið 1997.
Keane meiddist illa í 1-0 tapi Manchester United gegn Leeds þegar Haaland steig inn í hann eftir að Keane féll í teignum. Haaland hreytti fúkyrðum í átt að Keane og sakaði hann um að fiska vítaspyrnu, en síðar kom í ljós að Keane hafði slitið krossband í hné.
Fjórum árum síðar náði Keane fram hefndum með ógeðfelldri tæklingu á Haaland. Keane fékk réttilega rautt spjald, en Haaland var þá á mála hjá Manchester City.
Keane viðurkenndi síðar í ævisögu sinni að hann hefði viljað hefna sín og enska fótboltasambandið dæmdi hann í lengra bann fyrir vikið. Man City lagði fram kæru sem félagið dró síðar til baka, áður en Haaland lagði skóna á hilluna vegna langvarandi meiðsla á hinu hnénu.
Írinn fann síðan nýjan óvin í syni Alf Inge, norska landsliðsmanninum Erling Braut Haaland. Árið 2024 sagði Keane að Haaland liti út eins og D-deildarleikmaður, en Erling gaf lítið fyrir þau ummæli og sagðist ekki vilja skipta sér af Keane.
Keane hefur haldið áfram að gagnrýna Erling og kallaði hann meðal annars ofdekraðan krakka eftir að honum var skipt af velli í leik með Man City.
Alf Inge hefur verið reglulegur gestur á leikjum heimsmeistaramótsins og fór beint á X eftir 2-1 tap Norðmanna gegn Englendingum. Þar sakaði hann dómarann um að hafa skemmt leikinn, en hrósaði þó Jude Bellingham fyrir frammistöðuna.
Keane sagði Alf Inge ekki vera í neinni stöðu til að dæma frammistöðu dómarans.
„Myndi hann muna eftir leiknum? Hann hefur augljóslega verið að drekka áfengi á leikjunum og þá er ég auðvitað að tala um pabbann. Hann er að fá sér í glas og þá sérðu leikinn öðrum augum,“ sagði Keane.
Orð Keane fóru eins og eldur í sinu um netheima og Alf Inge svaraði einnig færslunni.
„Einu sinni aumingi, ávallt aumingi!“ skrifaði hann, en eyddi færslunni skömmu síðar.
Keane hélt áfram að ræða leikinn og sagði ómögulegt að halda því fram að dómarinn hefði kostað Norðmenn sigurinn.
„Fjölskyldumeðlimir og stuðningsmenn eru allir tilfinningaríkir eftir svona leiki og við sáum viðtölin við enska landsliðsþjálfarann, Jude Bellingham og fjölskyldumeðlimi.“
„Maður verður að leyfa þeim að njóta vafans, en þegar fólk vaknar daginn eftir leik er ekki hægt að sitja þarna og segja að dómarinn hafi kostað þá leikinn. Það er bara ekki hægt.“
„Það er hægt að deila um nokkrar ákvarðanir, en það er alls ekki hægt að segja að hann hafi kostað þá leikinn,“ sagði Keane.