Mikið undir hjá KA að nýi völlurinn verði klár fyrir grannaslaginn - „Held að það verði raunin"

Svona lítur stúkan við nýja völlinn út.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Þetta er stúkan við völlinn sem KA hefur spilað á síðustu ár.

Mynd: Fótbolti.net

Sævar Péturs og Siggi Helga með ljósblá trefilinn fara yfir málin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svona lítur stúkan við nýja völlinn út.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
„Við fáum staðfestingu á morgun, en ég myndi segja að það væru góðar líkur á því að við séum að fara spila þann leik á nýja vellinum. Við myndum þá hefja miðasölu á miðvikudaginn," segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, við Fótbolta.net.
Næsti heimaleikur KA verður gegn grönnunum í Þór mánudaginn 27. júlí. Framkvæmdir eru í gangi á KA svæðinu og er unnið hart að því að geta spilað leikinn á nýja vellinum sem tekur á móti talsvert fleiri áhorfendum en sá völlur sem nú er spilað á.

„Ef við náum ekki að spila á nýja vellinum er eiginlega bara orðið uppselt, því Þór á 400 miða hjá okkur á þann leik. Við erum búnir að selja ársmiðahöfum á leikinn."
„Ég held að það verði raunin að við náum að spila á nýja vellinum og koma 1500-2000 manns á völlinn."
Ef þetta verður á sama velli og spilað hefur verið á og Þór fær 400 miða, væri það ekki helmingurinn af öllum þeim sem gætu komist á völlinn?
„Jú, það væru um 800. Við bara skiptum við Þór, fengum 400 miða á fyrri leikinn og Þórsararnir eiga 400 miða hjá okkur og við munum alveg standa við það."
„Ég trúi ekki öðru en að við náum (að spila á nýja vellinum), verktakinn er að vinna á fullu."
„Það vantar vallarklukku og þá förum við að verða góðir. Klukkan er komin og ég vona að einhver komi í (að setja upp) undirstöðurnar í dag."
„Eina sem við eigum eftir að leysa er hvar fréttamenn verða, en aðstaðan fyrir sjónvarpið er klár. Þetta á að verða stór útsending."
Það er því alveg ljóst að það er mikið undir hjá KA að nýi völlurinn verði klár. Uppselt var á fyrri leik liðanna í vor og yrði talsverður tekjumissir út frá miða- og veitingasölu ef ekki verður hægt að spila á nýja vellinum.