Fotbolti.net
03.07.26 - 09:37
Kári Snorrason

Real Madrid gefur út yfirlýsingu vegna orðróms um Enzo

Enzo Fernandez hefur sjálfur daðrað við Real Madrid í fjölmiðlum.

Enzo Fernandez hefur sjálfur daðrað við Real Madrid í fjölmiðlum.

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid hefur birt opinbera yfirlýsingu þar sem félagið vísar á bug fréttum um að það hafi reynt við Enzo Fernandez, miðjumann Chelsea.

Enzo hefur verið sagður eitt helsta skotmark félagsins og hefur hann sjálfur daðrað við félagið.

Þetta er í annað sinn í sumar sem Real Madrid telur sig knúið til að bregðast opinberlega við orðrómi um leikmann annars félags. Fyrr í sumar birti félagið sambærilega yfirlýsingu þar sem það hafnaði fréttum um tilboð í Michael Olise, leikmann Bayern München.
Real Madrid sendir frá sér yfirlýsingu - Hafa ekki rætt við Olise
TENGT EFNI

Real Madrid sendir frá sér yfirlýsingu - Hafa ekki rætt við Olise

„Í ljósi þeirra upplýsinga og yfirlýsinga sem fram hafa komið undanfarna daga varðandi meintan áhuga Real Madrid á leikmanninum Enzo Fernández.

Félagið vill taka fram að það hefur ekki gert neinar tilraunir, hvorki beint né óbeint, til að semja við fyrrnefndan leikmann og hefur auk þess engan ásetning um að ráðast í slíkar aðgerðir,“
segir m.a. í tilkynningu félagsins.

Xabi Alonso nýr stjóri Chelsea vill halda Enzo en hann skoraði 15 mörk og átti 7 stoðsendingar á síðasta tímabili. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2032.

Félagið gaf út sambærilega yfirlýsingu um Michael Olise.

Félagið gaf út sambærilega yfirlýsingu um Michael Olise.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.