Tielemans með riftunarákvæði sem Man Utd nýtir

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Youri Tielemans (29) nálgast Manchester United og segir David Ornstein að viðræður um félagaskipti séu vel á veg komnar.
Belgíski miðjumaðurinn er með 35 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum en hægt er að virkja það með því að bjóða þá upphæð í leikmanninn.

TENGT EFNI
Tielemans á leið í Man Utd
Tielamans kom í Aston Villa og vann Evrópudeildina með liðinu í vetur. Aston Villa vill ekki missa miðjumanninn, hann hefur fengið nýtt samningstilboð frá félaginu, en allt bendir til þess að Belginn sé á leið á Old Trafford.
United hefur verið að skoða miðjumenn í sumar og er Andrey Santos á leiðinni frá Chelsea. Þá voru þeir Sandro Tonali, Elliot Anderson og Manuel Fernandes einnig orðaðir við United en Tielemans virðist vera lendingin. Þeir þrír kostuðu allir mun meira en Tielemans.
Manuel Ugarte meiddist illa á HM og verður líklega lítið sem ekkert með á komandi tímabili og Casemiro yfirgaf félagið þar sem samningur hans var að renna út.