26.08.26 - 11:10
Elvar Geir Magnússon
Villa dregur sig úr viðræðum um Leao

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Aston Villa hafi ákveðið að fara ekki lengra með áhuga sinn á kantmanninum Rafael Leao hjá AC Milan.
Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur einnig verið orðaður við Tottenham en ekki er útlit fyrir að hann sé á leið þangað.
Leao hefur verið hjá Milan í sjö ár en hefur ekki farið leynt með það að hann vilji nú færa sig um set og breyta til á ferlinum. Talið er líklegt að hann endi í Tyrklandi og gæti Galatasaray gert tilboð á næstu dögum.

TENGT EFNI
Þýskur varnarmaður orðaður við Man Utd - Villa vill sóknarmenn
Villa virðist ætla að beina kröftum sínum að því að reyna að fá senegalska sóknarmanninn Nicolas frá Chelsea og þá hefur félagið verið orðað við Jean-Philippe Mateta hjá Crystal Palace.