Fotbolti.net
26.08.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kvittaði fyrir Stjörnu-mýtuna gegn Blikum - „Ýmsir Garðbæingar verið að pota í mig"

Það mikilvægasta er að tryggja okkur Evrópusæti fyrir næsta tímabil og taka næsta skref sem lið

Það mikilvægasta er að tryggja okkur Evrópusæti fyrir næsta tímabil og taka næsta skref sem lið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Tilfinningin er auðvitað mjög góð, gaman að skora mörk og hjálpa liðinu að vinna leiki," segir Róbert Hauksson sem var á skotskónum í liði Fram gegn Breiðabliki á mánudag.

Róbert, sem er 24 ára framherji, skoraði þar sitt fjórða mark í Bestu deildinni í sumar og í fyrsta sinn skoraði hann í tveimur leikjum í röð í deildinni.

Fram vann leikinn 3-4 og lagði Róbert einnig upp mark í leiknum sem var hans þriðja stoðsending í sumar. Hann hefur því komið að sjö mörkum með beinum hætti.
Merkilegt fyrirbæri
„Markaskorun er merkilegt fyrirbæri, og er jafn andlegt eins og það er tæknilegt. Þegar maður nær inn einu marki verður strax auðveldara að skora næsta og svo koll af kolli."

„Þetta virkar líka öfugt og fannst mér það kannski helst einkenna tímabilið í fyrra, að því lengra sem leið á milli leikja án þess að skora, því erfiðara var að brjóta stífluna,"
segir Róbert sem skoraði þrjú mörk á síðasta tímabili.

„Maður horfir auðvitað á það eftir tímabilið í fyrra hvað hefði mátt betur fara og fyrir mér var það klárlega markaskorun sem vantaði aðeins upp á, vonandi er hægt að halda því áfram og klára tímabilið af krafti."

Öll þrjú mörkin höfðu komið gegn Stjörnunni
Eftir leikinn gegn Stjörnunni var bent á að þú hefðir bara skorað gegn Stjörnunni á þessu tímabili, var það eitthvað sem þú varst meðvitaður um?

„Já, það höfðu nú nokkrir bent mér á þessa tölfræði gegn Stjörnunni og kann ég svo sem engar útskýringar á því endilega, maður fer inn á alla leiki með það markmið að skora og vinna leikinn og það virðist hafa lukkast betur gegn Stjörnunni heldur en öðrum liðum. Það hafa ýmsir Garðbæingar verið að pota í mig varðandi þetta og það er bara gaman af því."

„Það var gott að ná að fylgja því strax eftir með öflugri frammistöðu gegn blikum í síðasta leik og kvitta strax fyrir þá mýtu að ég gæti bara skorað gegn Stjörnunni,"
segir Róbert sem kom í Fram frá Leikni fyrir tímabilið 2025 en áður hafði hann leikið með Þrótti og er uppalinn í Stjörnunni.

Annað væri óeðlilegt
Róbert byrjaði tímabilið meiddur en hefur verið nokkuð stór hluti af liðinu frá því í um miðjan maí. Hvernig líður þér með hlutverkið í liðinu á þessu tímabili?

„Mér líður mjög vel með mitt hlutverk innan liðsins, hvort sem það er að koma inn af bekknum og reyna að breyta leiknum eða byrja inn á. Þegar maður spilar fyrir klúbb eins og Fram verður alltaf samkeppni um allar stöður og góðir leikmenn að berjast um mínútur, annað væri óeðlilegt."

Hvernig líður þér með samkeppnina við Vuk, Atla og Jakob fremst á vellinum?

„Við erum allir ólíkir leikmenn með okkar eigin styrkleika og höfum því ýmsa valmöguleika sóknarlega sem hefur skilað sér í mikilli markaskorun liðsins."

Hvert er markmiðið það sem eftir er af tímabilinu?

„Markmiðið fyrir restina af tímabilinu er að reyna að hamra járnið meðan það er heitt og ná inn nokkrum mörkum til viðbótar, en það mikilvægasta er að tryggja okkur Evrópusæti fyrir næsta tímabil og taka næsta skref sem lið."

Langar að vera hluti af því sem framundan er hjá Fram
Róbert framlengdi samning sinn við Fram í sumar en samningurinn hefði runnið út eftir tímabilið. Var það einföld ákvörðun?

„Já, það var tiltölulega auðveld ákvörðun að framlengja við Fram, það eru mjög spennandi tímar framundan hjá klúbbnum og langaði mig að vera hluti af því."

„Mér finnst ég hafa tekið miklum framförum sem leikmaður frá því að ég kom fyrir tveimur árum og mjög stór hluti af því er þjálfarateymið hérna, Rúnar og Helgi hafa alltaf haft mikla trú á mér og sýnt mér mikið traust, líka þegar mörkin voru ekki að detta inn."

„Á sama tíma er þetta frábær hópur af leikmönnum hjá okkur og við höfum sýnt það í ár að við eigum fullt erindi í þessi bestu lið,"
segir Róbert.

Fram er átta stigum á eftir toppliðinu Víkingi og með jafnmörg stig og KR í 2. og 3. sætinu þegar sjö leikir eru eftir af Bestu deildinni.
Lagði upp mark fyrir Harald Einar Ásgrímsson.

Lagði upp mark fyrir Harald Einar Ásgrímsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Marki Róberts fagnað á mánudag.

Marki Róberts fagnað á mánudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markaskorun er merkilegt fyrirbæri, og er jafn andlegt eins og það er tæknilegt

Markaskorun er merkilegt fyrirbæri, og er jafn andlegt eins og það er tæknilegt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

,Markmiðið fyrir restina af tímabilinu er að reyna að hamra járnið meðan það er heitt og ná inn nokkrum mörkum til viðbótar

,Markmiðið fyrir restina af tímabilinu er að reyna að hamra járnið meðan það er heitt og ná inn nokkrum mörkum til viðbótar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjög stór hluti af því er þjálfarateymið hérna, Rúnar og Helgi hafa alltaf haft mikla trú á mér og sýnt mér mikið traust

Mjög stór hluti af því er þjálfarateymið hérna, Rúnar og Helgi hafa alltaf haft mikla trú á mér og sýnt mér mikið traust

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.