26.08.26 - 11:34
Elvar Geir Magnússon
Kean neitar að æfa með Fiorentina

Moise Kean.

Mynd: EPA

Moise Kean.

Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar segja að framherjinn Moise Kean hafi mætt of seint á æfingu með Fiorentina í gær og muni ekki mæta á æfingu í dag.
Kean er samherji Alberts Guðmundssonar hjá Fiorentina en vill fara til Como sem gerði 40 milljóna evra tilboð í leikmanninn í gær. Como tekur þátt í Meistaradeildinni en liðið hefur verið að ná frábærum árangri undir stjórn Cesc Fabregas.

TENGT EFNI
Ítalía: Malen og Dybala fóru hamförum í stórsigri á Fiorentina
Fiorentina vill fá 45 milljónir evra fyrri Kean en spurning hvernig málin þróast eftir nýjasta tilboðið. Kean hefur þegar náð munnlegu samkomulagi við Como um kaup og kjör.
Kean var látinn byrja á bekknum þegar Fiorentina tapaði 4-0 gegn Roma á mánudagskvöldið en kom inn af bekknum í seinni hálfleik.
Kean var látinn byrja á bekknum þegar Fiorentina tapaði 4-0 gegn Roma á mánudagskvöldið en kom inn af bekknum í seinni hálfleik.