26.08.26 - 10:59
Elvar Geir Magnússon
City að gera tilboðið í Enzo klárt

Enzo Fernandez.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Enzo Fernandez.

Mynd: EPA
Það er nóg í gangi á skrifstofu Manchester City en ljóst er að félagið mun gera tilboð í Enzo Fernandez, leikmann Chelsea, áður en glugganum verður lokað.
Í gær var greint frá því að City væri að undirbúa tilboð og nú fullyrða áreiðanlegir fjölmiðlar á borð við BBC að tilboð sé væntanlegt.

TENGT EFNI
City mun búa til óreiðu með risatilboði fyrir lok gluggans
Enzo Maresca vill styrkja miðsvæðið með því að sækja nafna sinn en þeir störfuðu saman hjá Chelsea.
Chelsea er með 120 milljóna punda verðmiða á Enzo Fernandez og ef City gengur að honum verður leikmaðurinn næstdýrastur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, á eftir Alexander Isak sem Liverpool keypti á síðasta ári fyrir 125 milljónir punda.
Þá yrði hann dýrasti leikmaður í sögu City en félagið borgaði 116 milljónir fyrir Elliot Anderson frá Nottingham Forest fyrr í þessum glugga.