Fotbolti.net
26.08.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sögulegur leikur FH í beinni á Sýn

FH spilar sinn fyrsta Evrópuleik í dag.

FH spilar sinn fyrsta Evrópuleik í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Íslensku liðin Breiðablik og FH verða í eldlínunni í Evrópubikar kvenna í dag.

Íslandsmeistararnir í Breiðabliki eiga heimaleik gegn rúmenska liðinu Csikszereda sem endaði í 2. sæti rúmensku deildarinnar á síðasta tímabili.

FH, sem endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra, spilar þá sögulegan leik í dag því kvennalið félagsins spilar sinn fyrsta Evrópuleik.
Andstæðingur FH verður Apollon Ladies F.C. og þessi fyrri leikur fer fram á Kýpur.

Leikirnir eru liðir í 1. umferð keppninnar og verða leikir dagsins í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í beinni sjónvarpsútsendingu á Sýn.

miðvikudagur 26. ágúst
Evrópubikar kvenna
15:00 Apollon Ladies FC-FH (Stelios Kyriakides Stadium)
17:30 Breiðablik-FK Csíkszereda (Kópavogsvöllur)

Blikar hefja leik klukkan 17:30 í dag.

Blikar hefja leik klukkan 17:30 í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.