Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku.
Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis?
Viðmælandi þáttarins er Emil Ásmundsson.Í þættinum ræðir Emil hvernig var að fara til Englands, átján mánaða meiðsli og hvernig það var að horfa á leikmann spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2005 og fá hann sem þjálfarann sinn níu árum síðar.
Umsjónarmaður þáttarins er Gylfi Tryggvason.
Sjá einnig:
Hlustaðu gegnum Podcast forrit
Athugasemdir