Fotbolti.net
16.06.26 - 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stjarnan fer til Færeyja

Stjarnan fer til Færeyja
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rétt í þessu var verið að draga í 1. umferð Sambandsdeildarinnar og var Stjarnan í pottinum.

Stjarnan mætir liði Víkings Götu frá Færeyjum og spilar fyrri leikinn á útivelli. Víkingur endaði í 4. sæti Betri deildarinnar á síðasta tímabili eftir að hafa unnið deildina 2024.

Fyrri leikurinn fer fram 9. júlí og sá seinni 16. júlí. Víkingur mætti FH í forkeppni Meistaradeildarinnar árið 2017 og tapaði þá 1-3 samanlagt í 2. umferð keppninnar.

Í liði Víkings eru kunnugleg nöfn eins og Kaj Leo í Bartalsstovu, sem lék með mörgum liðum hér á landi, og fyrirliðinn Sölvi Vatnhamar sem er bróðir Gunnars Vatnhamars sem spilar með Víkingi Reykjavík.
Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn
TENGT EFNI

Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn

Í morgun var liðunum í 1. umferðinni skipt upp í fimm hópa og voru þetta liðin sem Stjarnan gat mætt eftir skiptinguna: St Joseph's FC (Gíbraltar), Levadia Tallinn (Eistland), Differdange (Lúxemborg), Víkingur (Færeyjar) og RFS (Lettland).

Stjarnan endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í fyrra og tryggði sér með því Evrópusæti.

Á morgun verður dregið í 2. umferðina í öllum Evrópukeppnunum.
Úr leik FH og Víkings Götu 2017.

Úr leik FH og Víkings Götu 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.