Fotbolti.net
16.06.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Af hverju eru KR-ingar svona miklu betri en í fyrra?

Hilmar Árni Halldórsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfarar KR.

Hilmar Árni Halldórsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfarar KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld er toppslagur Víkings og KR í Bestu deildinni. Víkingar hafa unnið níu leiki í röð en samt sem áður er KR bara þremur stigum frá þeim.

KR hefur nefnilega átt frábært sumar til þessa eftir að hafa bjargað sér frá falli í lokaleiknum í fyrra.
Óskar Hrafn Þorvaldsson er á sínu öðru heila tímabili sem aðalþjálfari liðsins en undir stjórn hans hefur KR spilað skemmtilegan og áhættumikinn fótbolta. Það virðist vera virka mun betur núna en í fyrra.

Fótbolti.net ræddi við Þorlák Árnason, fyrrum þjálfara ÍBV, og Halldór Árnason, fyrrum þjálfara Breiðabliks, í aðdraganda stórleiksins og ræddu þeir muninn á KR núna og í fyrra. Halldór, sem er fyrrum aðstoðarþjálfari Óskars hjá Breiðabliki, telur að tími sé aðalmálið í þessari jöfnu.

„Munurinn er fyrst og fremst að leikmenn geisla af sjálfstrausti. Liðið hefur fengið að þróa leikstílinn í friði og það er þannig sem lið verða betri," segir Dóri. „Öll undirliggjandi tölfræði frá því í fyrra sagði að væri á réttri lið, svo munurinn er ekki á boltanum sem þeir spila heldur að þeir fengu tíma og næði til að verða betri."

Þorlákur telur að stærsti munurinn sé taktískur.

„Stærsti munurinn liggur að mínu mati í taktik liðsins, bæði varnarlega og sóknarlega. Þó verður að taka tillit til þess að KR missti út þó nokkra leikmenn í meiðsli í fyrra sem gerði þeim erfiðara fyrir með að framkvæma krefjandi leikstíl. Uppspil KR er mun betra en í fyrra og þeir hafa bætt við uppspilsleiðum. Þá hefur Arnór Ingvi gefið þeim betri sendingarmöguleika þar sem hann er bæði fljótur að færa boltann og svo getur hann bæði spilað stutt og langt, það síðara gefur KR meiri dýpt í þeirra sóknarleik," segir Þorlákur.

„Varnarlega er liðið mun betra, og þó svo að liðið leki ennþá mörkum þá finnst mér það ekki vera mikið vegna taktískra vandræða."

KR-ingar eru hrikalega skemmtilegir. „Leikstíll KR er að mínu mati séreinkenni liðsins og hann endurspeglar mjög sterkt persónueinkenni þjálfarans. Leikstíll liðsins er áhættusamur, hugrakkur og á köflum brjálaður, þetta veldur þvi að upplifun áhorfenda getur verið bæði stórkostleg og óþægileg. Á köflum minnir KR á sýningarlið Harlem Globetrotters," sagði Þorlákur.

Viðtölin eru hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn
TENGT EFNI

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

Dóri og Óskar unnu saman hjá bæði Gróttu og Breiðabliki.

Dóri og Óskar unnu saman hjá bæði Gróttu og Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar hafa verið mjög flottir í sumar.

KR-ingar hafa verið mjög flottir í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.