Fotbolti.net
16.06.26 - 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alfreð að ráða Freysa?

Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: Sportsklubben Brann

Norskir fjölmiðlar segja frá því í dag að Freyr Alexandersson sé í viðræðum við Rosenborg.

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg en hann og Freyr þekkjast vel.
Hvað næst fyrir Freysa?
TENGT EFNI

Hvað næst fyrir Freysa?

Freyr var í upphafi mánaðarins látinn fara frá Brann eftir að hafa gert þar flotta hluti. Var Brann í toppbaráttu á síðasta tímabili og komst í norska bikarúrslitaleikinn ásamt því að liðið komst í umspil um að komast í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Brann lenti í vandræðum á þessu tímabili og Freyr var látinn fara.

Nú segja Bergens Tidende og Adresseavisen í Noregi að Alfreð hafi rætt við Frey um starfið hjá Rosenborg sem er laust. BT segir jafnframt frá því að Freyr fái starfið ef hann vill það.

Rosenborg er sögulega séð stærsta félagið í Noregi en hefur verið í talsverðu brasi undanfarin misseri. Rosenborg er þessa stundina í næst neðsta sæti norsku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.