Fotbolti.net
15.06.26 - 22:41
Sigurjón Árni Torfason

Jón Daði: Mjög sáttur þar sem ég er

Auglýsing
Jón Daði skoraði í dag

Jón Daði skoraði í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss tók á móti Þrótti Vogum á JÁVERK-vellinum á Selfossi í dag. Leiknum lauk með 3–1 sigri heimamanna sem höfðu yfirhöndina mest allan leikinn. Sigur Selfoss var því fyllilega sanngjörn niðurstaða.
Jón Daði lék allan leikinn í kvöld og var einn af bestu mönnum vallarins. Hann skoraði af öryggi úr vítaspyrnu og lagði sitt af mörkum í góðum sigri Selfoss með sterkri frammistöðu.

„Bara verulega sáttur, svona mikill iðnaðarsigur þrátt fyrir að við vorum mjög skipulagðir og svona mjög skýrt identity í leikstíl okkar. Og við bárum bara mjög mikla virðingu fyrir þeim í dag og náðum að skila þremur stigum í hús, sem er það allra mikilvægasta". sagði Jón Daði við fréttamann Fótbolti.net eftir leik. 

Mikið hefur verið rætt og ritað að undanförnu um mögulegt ósætti milli Jóns Daða og Selfoss, auk þess sem framtíð hans hjá félaginu hefur verið til mikillar umræðu.

„Nei, nei, það mál er bara að baki. Ég er bara mjög ánægður þar sem ég er í dag. Ég er náttúrulega með mjög mikinn metnað fyrir sjálfan mig og alla í kringum mig og er ástríðufullur líka. Fótbolti er leikur tilfinninga og annað, en ég er bara, eins og ég segi, á góðum stað í dag og með geggjað lið á bakvið mig, góða stráka, liðsfélaga og þjálfara. Þannig að ég er bara mjög ánægður þar sem ég er.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.