Fotbolti.net
16.06.26 - 15:36
Kári Snorrason

Víkingar töluvert sigurstranglegri

Frá viðureign liðanna á síðasta ári.

Frá viðureign liðanna á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur er töluvert líklegra liðið komandi inn í stórleik umferðarinnar gegn KR ef marka má veðbanka.

Einn slíkur, Epicbet, býður upp á 1.49 í stuðul á Íslandsmeistarana en 5.84 er í stuðul á KR sigur. Þá er 5.06 í stuðul á jafntefli.
Í könnun á forsíðu Fótbolta.net, þar sem tæplega tvö þúsund lesendur tóku þátt, er sama stef en 63% lesenda spáir Víkingi sigri og 27% spá KR sigri.

Samkvæmt Epicbet eru Elías Már Ómarsson (Víkingur R.) og Aron Sigurðarson (KR) líklegustu markaskorarar kvöldsins og er rúmlega tveir í stuðul á að þeir skori.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.