Fotbolti.net
16.06.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Chalobah kallaður inn í enska landsliðið vegna meiðsla

Chalobah kallaður inn í enska landsliðið vegna meiðsla
Canon

Mynd: EPA

Tino Livramento, bakvörður Newcastle, glímir við meiðsli og getur ekki spilað á HM. Hann getur bæði leyst stöðu hægri og vinstri bakvarðar en hægri bakvörður er hans aðalstaða.

Hann glímir við meiðsli í kálfa og heldur aftur til Englands.

Thomas Tuchel hefur kallað inn Trevoh Chalobah, miðvörð Chelsea, til að fylla í skarð Livramento. Chalobah er 26 ára og spilaði í fyrra sinn fyrsta A-landsleik.
England spilar sinn fyrsta leik á HM gegn Króatíu annað kvöld en liðið er einnig með Gana og Panama í riðli.

Ekki er búist við því að Chalobah verði til taks fyrir leikinn gegn Króatíu.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Tino Livramento er meiddur.

Tino Livramento er meiddur.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.