Aldrei fleiri jafntefli

Spánverjar gerðu jafntefli við Grænhöfðingja.

Mynd: EPA

Jafnteflisleikir hafa verið allsráðandi í fyrstu viku HM. Síðustu fjórir leikirnir á mótinu hafa allir endað með jafntefli.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1958 sem sem allir fjórir leikirnir á einum leikdegi HM enda án sigurvegara.
Áhugverðast er þó að alls hafa komið átta jafntefli úr fyrstu sextán leikjunum og ekkert heimsmeistaramót hefur á þessu stigi verið með eins mörg jafntefli.

Það gæti spilað inn í að búið sé að stækka mótið upp í 48 lið og ekki eins slæmt að gera jafntefli í fyrsta leik eins og það var á fyrri mótum.
Landslið gætu komist í 32-liða úrslitin á aðeins þremur stigum, þrjú jafntefli tryggja nánast örugglega að lið komist áfram.
Þá vekur athygli að evrópsk lið eru að fara hægt af stað í keppninni, sjö af tíu Evrópuliðum hafa mistekist að vinna í fyrstu umferð. Eru hitinn og loftslagið að hafa svona mikil áhrif þar?

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!