Þórsarar með alla anga úti - Reyndu við Daða Berg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór er í virkri leikmannaleit eftir að Isaac Atanga meiddist alvarlega og Sebastian Haugland yfirgaf félagið óvænt.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði félagið samband við Víking og spurðist fyrir um að fá Daða Berg Jónsson á láni en fengu höfnun.
Daði hefur verið frá í tæpt ár vegna erfiðra meiðsla og ætlar hann að ná sér áður en að frekari ákvörðun verður tekin um framtíð sína.

TENGT EFNI
Þór hefur mikinn áhuga á Guðmundi Andra
Þá greindi Fótbolti.net frá því í gær að Þór hafi mikinn áhuga á Guðmundi Andra Tryggvasyni, leikmanni KR. Félagið þyrfti að kaupa hann frá KR en félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí. ÍBV, FH og Keflavík hafa jafnframt áhuga á Guðmundi.
Í útvarpsþættinum Fótbolta.net var framherjinn Árni Vilhjálmsson sömuleiðis orðaður við Þór en hann hefur jafnframt verið orðaður við Víking, KR og Breiðablik. Árni er samningslaus eftir að hafa spilað síðustu tvö ár í Sádi-Arabíu.