Gylfi framlengir í Víkinni - „Akkúrat það sem við viljum frá honum"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við Víking út tímabilið 2027 en fyrri samningur hefði runnið út eftir yfirstandandi tímabil.
Gylfi, sem er markahæsti landsliðsmaður í sögunni, kom til Víkings frá Val fyrir rúmu ári síðan, var keyptur á metupphæð, og hjálpaði liðinu að verða Íslandsmeistari síðasta haust..
Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp eitt í átta leikjum fyrir toppliðið á tímabilinu. Gylfi verður líklega í eldlínunni þegar Víkingur tekur á móti KR í toppbaráttuslag Bestu deildarinnar klukkan 19:15 í kvöld.

TENGT EFNI
Karl Friðleifur framlengir við Víking
Úr tilkynningu Víkings
Gylfi gekk til liðs við Víkinga í febrúar 2025 og var lykilmaður í liði Víkings sem sótti Bestu deildar skjöldinn á ný í Hamingjuna. Gylfi hefur leikið 46 leiki fyrir félagið og í þeim hefur hann skorað 13 mörk.
„Gylfa Þór þarf ekki að kynna fyrir neinum, hann er besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi og jafnframt sá markahæsti. Leiðtogi á vellinum og hefur verið partur af gríðarlega sterkri miðju Víkings síðastliðið ár. Það er gríðarlega ánægjulegt að hann verði með okkur a.m.k. eitt ár í viðbót því hann setur mikla pressu á sjálfan sig, liðsfélaga og starfslið sem er akkúrat það sem við viljum frá honum," segir Kári Árnason sem er yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 15 | +17 | 32 |
| 3 | Fram | 14 | +12 | 30 |
| 4 | Breiðablik | 14 | +8 | 25 |
| 5 | Valur | 15 | -5 | 19 |
| 6 | Keflavík | 14 | -7 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 14 | -26 | 8 |