Fotbolti.net
16.06.26 - 15:08
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Útlit fyrir að Nico Paz verði áfram hjá Como

Útlit fyrir að Nico Paz verði áfram hjá Como
Canon

Mynd: EPA

Útlit er fyrir að Nico Paz verði áfram hjá ítalska liðinu Como næsta tímabili en spænskir fjölmiðlar segja að nýr stjóri Real Madrid, Jose Mourinho, leggi áherslu á að vera með reynslumikla menn í hópnum sínum.

Como, sem spilar undir stjórn Cesc Fabregas, verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Nico Paz er 21 árs hæfileikaríkur argentínskur miðjumaður sem kom til Como frá Real Madrid 2024.

Real Madrid er hinsvegar með klásúlu um að geta keypt hann til baka og er hún virk til 2027.

Reiknað er með því að Real Madrid muni á endanum kaupa Paz til baka en líklegt er að það gerist eftir næsta tímabil. Paz er með argentínska landsliðinu á HM sem nú er í gangi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.