Fotbolti.net
16.06.26 - 12:36
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu HM mörkin: Just kom Nýja-Sjálandi tvívegis yfir

Elijah Just stal senunni.

Elijah Just stal senunni.

Canon

Mynd: EPA

Íran og Nýja-Sjáland gerðu 2-2 jafntefli í G-riðli heimsmeistaramótsins á SoFi-leikvanginum í Inglewood í Kaliforníu í nótt.

Elijah Just, 26 ára leikmaður skoska liðsins Motherwell, var stjarna leiksins og kom Nýja Sjálandi tvívegis yfir. Hann varð fyrsti Nýsjálendingurinn til að skora tvennu í landsleik.

Just fæddist í Nýja-Sjálandi en faðir hans er þýskur og móðir hans kínversk.

Seint í gærkvöldi gerðu Úrúgvæ og Sádi-Arabía 1-1 jafntefli en hér að neðan má sjá mörkin úr þessum tveimur leikjum.
Sjáðu jöfnunarmark Belga og svipmyndir úr óvæntu jafntefli Spánverja
TENGT EFNI

Sjáðu jöfnunarmark Belga og svipmyndir úr óvæntu jafntefli Spánverja

Íran 2 - 2 Nýja-Sjáland
0-1 Elijah Just ('7 )
1-1 Ramin Rezaeian ('32 )
1-2 Elijah Just ('54 )
2-2 Mohammad Mohebi ('64 )



Sádi-Arabía 1 - 1 Úrúgvæ
1-0 Abdulelah Al-Amri ('41 )
1-1 Maxi Araujo ('80 )

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.