Auðun: Blendnar tilfinningar

Auðunn Helgason og hans menn eru í 11. sæti

Mynd: Þróttur Vogum

Auðunn Helgason og hans menn eru í 11. sæti

Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum lenti snemma undir og eftir það varð leikurinn á brattann að sækja fyrir gestina. Auðun Helgason, þjálfari Þróttar, var eðlilega vonsvikinn þegar fréttamaður Fótbolti.net ræddi við hann að leik loknum.
„Það eru svona mjög blendnar tilfinningar en kannski er þetta bara svona, vont að ná ekki í stig. En kannski það sem upp úr stendur er svona að liðið er að gera vel og allir eru að reyna að gera sitt allra, allra besta. Við erum klaufar á tveimur augnablikum. Það er sjálfsmark fyrst og svo erum við ekki alveg mættir þarna fyrstu mínútu í seinni hálfleik sem verður til þess að við fáum lítið og 2-0. Eftir það er þetta erfitt en svona er þetta, þetta eru blendnar tilfinningar."
Þróttur virtist vera undir í flestum þáttum leiksins og átti fá svör við sterkum varnarleik Selfoss. Sigur heimamanna var því fyllilega sanngjörn niðurstaða.
„Nei, ég held við höfum ekki átt skilið að fá meira út úr þessum leik af því við þurfum að vera bara vakandi á öllum lykil mómentum og þessum mómentum inn í okkar teig. Við erum ekki nógu góðir þar. Við höfum ekki verið nógu góðir þar í síðustu leikjum og á meðan það er ekki í lagi þá fáum við engin stig. En við þekkjum alveg hvernig og vitum hvernig við eigum að verjast því og þá þurfum við bara að bæta það."

