Vestra bíður hrikalega erfitt verkefni í Aserbaísjan

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Í dag var dregið í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Ljóst var að bikarmeistarar Vestra, sem leika í Lengjudeildinni, myndu fá erfiða andstæðinga.
Þeir fá ekki bara erfiða andstæðinga heldur líka erfitt ferðalag því mótherjinn verður Qarabag frá Aserbaísjan, sem vakti mikla athygli fyrir framgöngu í sína í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.
Það er hægt að fullyrða að um nær ómögulegt verkefni sé að ræða fyrir Vestra en liðið fær fallhlíf og færist yfir í forkeppni Sambandsdeildarinnar ef liðið tapar.

Heimaleikur Vestra gegn Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar fer fram á AVIS-vellinum í Laugardal. Leikirnir í umferðinni verða spilaðir 9. og 16. júlí og mun Vestri byrja úti.
Vestri féll úr Bestu deildinni í fyrra og hefur ekki farið vel af stað í Lengjudeildinni.