Fotbolti.net
13.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Skýt næsta mann sem ber hann saman við Lukaku"

Madjo (t.h)

Madjo (t.h)

Canon

Mynd: EPA

Brian Madjo, 17 ára framherji Aston Villa, vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sina gegn PSG í Ofurbikar Evrópu í gær.

Madjo var óvænt í byrjunarliðinu og skoraði mark Aston Villa í 2-1 tapi. Hann var mjög líflegur og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk. Varnarmenn PSG voru í miklum vandræðum með hann.
Hann er stór og stæðilegur og eflaust margir sem hugsuðu að hann væri líkur Romelu Lukaku á velli. Það er ekki mælt með því að ræða það við spænska fréttamanninn Guillem Balague.

„Madjo er 20 marka maður á tímabili núna. Ég sver að ég skrifaði fyrir leikinn að hann myndi skora sitt fyrsta mark í keppnisleik. Þvílíkur leikmaður, hreyfingarnar, hraðinn og hvernig hann tengir saman spilið," skrifaði Balague á X.

„Hann er nýr Haaland í mótun. Ég skýt næsta mann sem ber hann saman við Lukaku."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.