Fotbolti.net
13.09.24 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Watkins með Villa á morgun

Ollie Watkins.

Ollie Watkins.

Canon

Mynd: EPA

Unai Emery stjóri Aston Villa greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Ollie Watkins yrði í leikmannahópnum á morgun, þegar Villa tekur á móti Everton í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni.

Enski sóknarmaðurinn þurfti að draga sig úr landsliðshópnum í liðnum glugga vegna meiðsla.
England um helgina - Norður-Lundúnaslagurinn á sunnudaginn
TENGT EFNI

England um helgina - Norður-Lundúnaslagurinn á sunnudaginn

„Bataferlið hefur gengið vel og hann verður í hópnum. Ef hann er í hópnum þá þýðir það að við teljum að hann geti spilað," segir Emery.

Emery var spurður að því hvort Ezri Konsa kæmi heill til baka úr landsleikjaglugganum en hann var tekinn af velli gegn Finnum. Hann svaraði að Konza væri heill heilsu eins og aðrir leikmenn Villa sem voru í landsliðsverkefnum.

Villa er með tvo sigra og einn tapleik eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.