Fotbolti.net
13.10.26 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

Flick læstist inni og enginn með lykilinn

Flick læstist inni og enginn með lykilinn
Canon

Mynd: EPA

Fréttamannafundur Hansi Flick, þjálfara Barcelona, tafðist um stund eftir að Þjóðverjinn læstist óvart inni á bak við hurð.
Einkunnir úr Meistaradeildinni: Portúgalirnir slakir - Tveir fá þrist hjá Arsenal
TENGT EFNI

Einkunnir úr Meistaradeildinni: Portúgalirnir slakir - Tveir fá þrist hjá Arsenal

Flick átti að mæta á fréttamannafund eftir 4-1 sigur Börsunga á Galatasaray í Istanbúl í kvöld.

Flick var mættur á réttum tíma en upp kom heldur óvenjulegt vandamál þegar honum tókst óvart að læsa sig inni á bak við hurð.

Undir venjulegum kringumstæðum hefði verið auðvelt að leysa málið en vallarstarfsmenn virtust ekki hafa hugmynd um hvar lykillinn væri niðurkominn.

Stórfurðulegt atvik og vonandi tekst Flick að losna út í tæka tíð til að komast með Börsungum heim til Spánar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.