13.10.26 - 20:13
Magnús Atlason
Þorsteinn bjóst við öðruvísi einvígi: Áttu í vandræðum með allt sem við vorum að gera

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þorsteinn Halldórsson var léttur á blaðamannafundi eftir 5-0 sigur á Króatíu í undanúrslitum umspilsins fyrir HM.
Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
Hann var spurður hvort hann byggist við þessari frammistöðu frá Króatíska liðinu fyrir einvígið.
„Nei, ég átti alveg von á því að þær myndu stíga aðeins upp en ég held bara að þegar þær ætluðu að fara að pressa eitthvað, þá opnaðist aðeins í gegnum pakkann hjá þeim eða utanvert á þær þannig að þær áttu erfitt með að tengja eitthvað í pressunni."
Ísland er 46 sætum ofar á heimslistanum heldur en Króatía.
„Það er meiri hraði í liðinu okkar og við erum betri þannig að það getur verið erfitt fyrir lið að fara í einhverja hápressu þannig að mér fannst við gera það vel, þannig að þær ná raunverulega aldrei að stíga upp."
„Þær voru í 5-3-2 og ætluðu að loka á okkur á miðsvæðinu og ýta okkur út og reyna að loka okkur þar inni. En mér fannst við heilt yfir gera þetta vel og þær áttu í vandræðum með að stoppa allt sem við vorum að gera."
Í framhaldi var Þorsteinn spurður út í varnarleik Íslands í leiknum.
„Varnarleikurinn heilt yfir mjög jákvæður og mjög solid. Þær áttu eitt skot á markið sem var af 25-30 metra færi, beint á markið. Mér fannst frammistaðan varnarlega alls liðsins mjög góð."