13.10.26 - 20:48
Magnús Atlason
Þorsteinn um varamennina: Jákvæður höfuðverkur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þorsteinn Halldórsson var hæstánægður með varamenn sína í dag eftir 5-0 sigur á Króötum á Laugardalsvelli.
Diljá Ýr Zomers byrjaði á bekknum, kom inn á 74 mínútu og skoraði tvennu.
"Bara frábær. Ég er alltaf glaður þegar leikmenn ýta við manni og segja: "Ég á að spila meira." Ég er bara ánægður með það. Það er jákvæður höfuðverkur að hafa leikmenn sem eru tilbúnar að taka af skarið og skora mörk."
Líf Joostdóttir van Bemmel og Emelía Óskarsdóttir komu inn á sem varamenn í sínum fyrsta landsleik. Líf var ekki lengi að gera stoðsendingu.
"Ég gaf leikmönnum tækifæri núna af því að við vorum komin í góða stöðu og mér fannst þær eiga það skilið. "
"Emelía var líka kröftug og hún átti "second-assist" og Líf kom inn á og var örugg á boltanum og leið vel með hann. Það er bara jákvætt."