13.10.26 - 22:56
Brynjar Ingi Erluson
„Zidane segir að Yoro sé sérstakur en mér finnst hann vera ein taugahrúga“

Leny Yoro hefur ekki heillað Parker

Mynd: EPA

Parker vill ekki sjá Maguire í vörn United

Mynd: EPA

Samkvæmt Parker væri best að hafa Martínez og De Ligt í vörninni

Mynd: EPA

Leny Yoro hefur ekki heillað Parker

Mynd: EPA
Paul Parker, fyrrum leikmaður Manchester United, telur að félagið geti ekki treyst á Leny Yoro og Harry Maguire í vörninni og þurfi jafnvel að fara á leikmannamarkaðinn til að styrkja hana.

TENGT EFNI
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
Parker telur að Manchester United þurfi að styrkja miðvarðastöðuna en þangað til það verður hægt sé mikilvægast að koma Matthijs De Ligt aftur í stand. Hann vill sjá Hollendinginn spila við hlið Lisandro Martínez í stað þess að treysta á Leny Yoro og Harry Maguire.
„Ég hef aldrei haft áhyggjur af hæð leikmanna. Sjálfur spilaði ég þessa stöðu í mörgum leikjum, meðal annars í fjögur ár hjá QPR og þrjú ár hjá Fulham. Ég spilaði þrjú ár í C-deildinni og eitt í B-deildinni. Þið munið hvernig C-deildin var á þessum tíma. Þetta snerist nánast eingöngu um líkamlega baráttu og mér gekk ágætlega.“
Parker hefur miklar mætur á Martínez og telur gagnrýnina sem Argentínumaðurinn fær oft á tíðum ósanngjarna, sérstaklega þegar litið er til frammistöðu annarra varnarmanna liðsins.
„Mér finnst Martínez mjög góður og klókur miðvörður. Það munar gríðarlega um hann þegar hann er ekki með því enginn annar í liðinu getur komið boltanum jafn hratt fram úr vörninni. Samt eru allir fljótir að benda á mistökin hans.“
„Harry Maguire gerir fullt af mistökum. Staðsetningarnar hans eru oft slæmar og hann virðist ekki hafa hraðann til að koma sér til baka. Hann er lengi að koma boltanum frá sér, tekur of margar snertingar og sendir allt of oft aftur fyrir sig. Ef við ætlum að gagnrýna Martínez verðum við líka að ræða Maguire.“
Parker telur að United vanti tvo öfluga miðverði en segir félagið þegar vera með einn slíkan í De Ligt, að því gefnu að hann nái sér af meiðslunum.
„United þarf tvo miðverði. Mér finnst félagið vera með mjög góðan varnarmann í De Ligt og ef hann væri heill væri hann alltaf í byrjunarliðinu. Vandamálið er hins vegar að hann er að glíma við bakmeiðsli og við því er lítið hægt að gera. Bakmeiðsli eru erfið og aðeins leikmaðurinn sjálfur veit hvernig honum líður. Maður verður að treysta því að hann láti vita þegar eitthvað er að. Ef hann nær sér aftur mun hann spila fullt af leikjum og þá er spurningin bara hver verður við hlið hans.“
Hann er hins vegar langt frá því að vera sannfærður um Yoro og telur Frakkann eiga í miklum erfiðleikum með kröfurnar sem fylgja því að spila í ensku úrvalsdeildinni. Yoro sá rautt gegn Atlético í kvöld og hefur alls ekki náð að heilla síðan hann kom frá Lille fyrir tveimur árum.
„Við eigum víst að trúa því að Leny Yoro sé eitthvað sérstakur vegna þess að Zinedine Zidane sagði það. En ég hef horft á Yoro spila í vörn United og hann virðist vera ein taugahrúga. Landsliðsfótbolti er allt annar handleggur en deildarfótbolti, sérstaklega nú til dags. Í deildinni eru andstæðingarnir stöðugt að pressa þig, sækja á þig og neyða þig til að hlaupa aftur í átt að eigin marki. Yoro virðist eiga í miklum vandræðum með það.“
Parker segir að United verði að hitta rétt á leikmenn þegar félagið styrkir vörnina en telur að Martínez og De Ligt gætu myndað öflugt miðvarðapar.
„Ég er ekki sannfærður um það sem við höfum í dag en tveir góðir miðverðir gætu breytt gríðarlega miklu. Það verða hins vegar að vera réttu leikmennirnir og annar þeirra ætti að vera De Ligt. Eins og staðan er núna á Martínez alltaf að vera í liðinu því hann getur leitt aðra áfram. Hann er ákveðinn, gefur tóninn og aðrir leikmenn geta tekið sér hann til fyrirmyndar. Mér finnst hann nýta styrkleika sína mjög vel. Ef þú ert með Martínez og De Ligt saman þá ertu kominn með tvo virkilega góða miðverði hjá United,“ sagði hann ennfremur.
Parker virðist vera á sömu blaðsíðu á Martínez, sem gagnrýndi stjórn United harðlega eftir 2-0 tapið gegn Atlético í kvöld fyrir að hafa ekki styrkt hópinn almennilega í sumar.