Fotbolti.net
13.11.20 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Bruno Fernandes setur met á útivelli

Bruno Fernandes setur met á útivelli
Canon

Mynd: Getty Images

Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, setti met í ensku úrvalsdeildinni gegn Everton um síðustu helgi.

Portúgalinn skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri Manchester United.

Fernandes hefur nú komið að 15 mörkum í fyrstu 10 útileikjum sínum í úrvalsdeildinni og það er met.
Fernandes hefur skorað tíu mörk í þessum leikjum og lagt upp fimm.

Manchester United keypti Fernandes frá Sporting Lisabon í janúar en hann var fljótur að láta til sín taka í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.