Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Neymar flaug í 23 tíma en var óleikfær
Neymar er meiddur.
Neymar er meiddur.
Mynd: Getty Images
Neymar, leikmaður brasilíska landsliðsins og PSG, er á leið aftur til Parísar eftir læknar brasilíska landsliðsins ákváðu að hann væri óleikfær fyrir komandi leiki.

Brasilía mætir Venesúela í dag en ljóst var fyrir talsverðu síðan að Neymar myndi ekki ná þeim leik.

Neymar flaug hins vegar til Brasilíu í von um að geta náð leiknum gegn Úrúgvæ næstkomandi þriðjudag. Nú er ljóst að svo er ekki.

Neymar er því á leið aftur til Parísar en flugið er ellefu og hálfur klukkutími hvor leið.

PSG hafði áður sagt að það væri ómögulegt fyrir Neymar að ná landsleikjunum og Thomas Tuchel, þjálfari liðsins, er allt annað en sáttur með að leikmaðurinn hafi farið til Brasilíu einungis til að vera sendur beint aftur til Parísar.
Athugasemdir
banner
banner
banner