Fotbolti.net
15.09.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristján kominn heim úr miklu ævintýri og hugar að næsta verkefni

Kristján Guðmundsson.

Kristján Guðmundsson.

Canon

Mynd: Aðsend

Kristján Guðmundsson er kominn heim eftir viðburðaríkan tíma í Portúgal þar sem hann stýrði kvennaliði Damaiense. Ævintýrinu lauk þegar félagið dró lið sitt úr keppni en Kristján tekur mikið með sér úr dvölinni og er nú farinn að horfa í kringum sig eftir næsta verkefni.

„Þetta var stórkostlegt alveg. Mikil áskorun og mjög þroskandi. Leikmenn eru atvinnumenn í íþróttinni og æfa mikið, mun meira en þekkist hér heima. Öll umgjörð á leikdögum og aðkoma er eins og við upplifum þegar við förum í fótboltaferðir til útlanda,“ segir Kristján.
Aðrar aðferðir
Hann þurfti fljótt að aðlagast annarri þjálfunarmenningu en þeirri sem hann hafði vanist hér á landi. Í stað þess að mæta til Portúgals og ætla að breyta öllu lagði hann áherslu á að kynnast þeim aðferðum sem fyrir voru.

„Fyrir mig var mikilvægt að bera virðingu fyrir þeim þjálfunaraðferðum og hefðum sem almennt eru notaðar í Portúgal og koma síðan mínum hugmyndum inn í samræmi við það. Það er mikilvægt að þjálfari átti sig á því hvernig leikmenn sem alast upp við aðra kennslu og aðrar þjálfunaraðferðir en við í Norður-Evrópu læra og skilja hlutina.“

Munurinn kom meðal annars skýrt fram í því hvernig æfingavikan var byggð upp.

„Portúgalar nota fjóra æfingadaga í líkamlega þáttinn og þjálfa hvern hluta fyrir sig, á meðan við almennt í Norður-Evrópu notum þrjá æfingadaga og æfum þar með tvo þætti einn af þessum þremur dögum.“

Kristján þurfti einnig að vinna með ákveðnar áherslur í leik liðsins, sérstaklega þegar boltinn vannst.

„Í leikfræðinni var verkefnið að fá leikmenn til að æfa og hugsa meira um að senda fram á við í opin svæði eftir að þær unnu boltann, í stað þess að tryggja boltann í hvert skipti. Þetta voru krefjandi og skemmtileg verkefni sem fjölga verkfærunum í verkfærageymslunni hjá mér.“

Kvennaboltinn á mikilli siglingu
Kristján fékk á sama tíma góða innsýn í portúgalska kvennaboltann sem hefur vaxið hratt undanfarin ár.

„Portúgalska deildin er nokkuð sterk, ein af tíu sterkustu deildum Evrópu. Þar, eins og í flestum sterkustu deildunum, eru tvö til þrjú lið sem eru langsterkust og erfitt að eiga við þau, bæði fjárhagslega og á vellinum.“

Portúgalska fótboltasambandið gerir þá kröfu að leikir í efstu deild fari fram á grasi. Framkvæmdin hefur þó ekki verið alveg jafn einföld og hugmyndin.

„Það er verulega gott mál en það gleymdist í upphafi að tryggja að öll kvennaliðin hefðu aðgang að góðum grasvelli. Það er nú eitt af forgangsmálum knattspyrnusambandsins að aðstoða félögin við þá uppbyggingu.“

Framfarirnar hafa þó verið miklar og Kristján segir gæðin í deildinni aukast jafnt og þétt.

„Kvennaboltinn í Portúgal hefur verið á geysilegu flugi síðustu sjö ár. Fjöldi góðra leikmanna hefur margfaldast, liðin eru alltaf að styrkjast og ná betri úrslitum í evrópukeppnum.“

Kristján kynntist líka VAR í Portúgal og á ekki eftir að sakna allra hliða þess.

„VAR er notað í deildinni og þá helst til þess að dæma vítaspyrnur, við misjafnar undirtektir,“ segir Kristján léttur. „Snerting í vítateig var nánast undantekningarlaust dæmd sem víti. Það er þróun á notkun VAR þarna eins og annars staðar og vonandi sjáum við betri notkun á VAR-búnaðinum á næstkomandi tímabili.“

Ævintýrinu lauk með fjárhagsvandræðum
Damaiense hafði verið flutt frá Lissabon til Algarve skömmu áður en síðasta tímabil hófst. Flutningurinn reyndist stórt verkefni og samhliða því þurfti félagið að glíma við fjárhagslegar áskoranir.

„Það var mikil áskorun fyrir alla og verkefnin sem mættu starfsfólki félagsins voru oft fleiri en sáust fyrir. Það er engin hefð í Algarve fyrir liðum í efstu deild og því ansi margt nýtt sem við komum með til svæðisins og kröfur um aðbúnað og fleira sem heimafólk hafði ekki séð áður,“ segir Kristján.

Stjórn félagsins leitaði að nýjum fjárfestum allan síðasta vetur en þegar leið á sumarið varð ljóst að ekki tækist að tryggja reksturinn með fullnægjandi hætti. Damaiense var að lokum dregið úr keppni fyrir nýtt tímabil.

„Fall liðsins niður um deild í vor hjálpaði ekki. Að fjármagna fótboltalið kvenna er ennþá ansi erfitt og við höfum séð þess dæmi í nokkrum af sterkari deildum Evrópu undanfarið.“

Dvölin á Algarve hafði þó sína kosti. „Við spiluðum þó á flottasta vellinum í deildinni, Estádio Algarve," segir Kristján.

Hvað næst?
Kristján, sem er mjög reynslumikill þjálfari, hefur undanfarin ár starfað í kvennaboltanum en nafn hans kom upp í tengslum við þjálfarastöðuna hjá karlaliði Stjörnunnar á dögunum eftir að Jón Þór Hauksson var rekinn. Aðspurður hvort eitthvað hafi verið til í þeim orðrómi er svarið skýrt.

„Alveg áreiðanlega. Ég er vissulega að leiða hugann að því að fara aftur í karlaboltann, þó nokkur ár séu liðin frá því ég var þeim megin.“

Hann vill þó ekki einskorða leitina að næsta starfi við karla- eða kvennabolta, Ísland eða útlönd.

„Hvort eða hvaða tækifæri það verður sem kemur upp er spennandi að sjá en fyrst og fremst lít ég á starfið sem vinnu með fólki og að þroska fólk til að verða betra.“

Kristján ætlar sér fleiri verkefni á þjálfaraferlinum, þótt hann útiloki heldur ekki að hlutverkið breytist þegar fram líða stundir.

„Eitt af þeim markmiðum sem ég hef núna er að búa til að minnsta kosti eitt lið í viðbót á þjálfaraferlinum, kannski tvö ef umhverfið leyfir, hvort sem það verður í kvenna- eða karlaboltanum, erlendis eða hér heima.“

„Hlutirnir breytast svo hratt í fótboltaheiminum að það er engin leið að segja til um hvað gerist næst. Mögulega verð ég fljótlega kominn inn á skrifstofu og farinn að segja þjálfurum til. Hver veit," sagði Kristján að lokum.
Mikið ævintýri í Portúgal.

Mikið ævintýri í Portúgal.

Canon

Mynd: Aðsend

Kristján hefur gríðarlega reynslu sem þjálfari.

Kristján hefur gríðarlega reynslu sem þjálfari.

Canon

Mynd: Aðsend

Það verður fróðlegt að sjá hvað Kristján gerir næst.

Það verður fróðlegt að sjá hvað Kristján gerir næst.

Canon

Mynd: Aðsend

,,Þetta voru krefjandi og skemmtileg verkefni sem fjölga verkfærunum í verkfærageymslunni hjá mér.

,,Þetta voru krefjandi og skemmtileg verkefni sem fjölga verkfærunum í verkfærageymslunni hjá mér.

Canon

Mynd: Aðsend

Kristján kominn heim úr miklu ævintýri og hugar að næsta verkefni
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.