15.09.26 - 14:09
Kári Snorrason
Sterling játar glæfraakstur og vörslu hláturgass

Fjarað hratt undir ferli Sterling.

Mynd: EPA

Fjarað hratt undir ferli Sterling.

Mynd: EPA
Raheem Sterling hefur játað hættulegan akstur og vörslu hláturgass eftir að hann ók Lamborghini-bifreið sinni á vegrið á hraðbraut í Hampshire í maí.
Lögreglan stöðvaði Sterling eftir slysið og fundust sex hylki af hlátursgasi í glæsibifreið hans.
Lögreglan stöðvaði Sterling eftir slysið og fundust sex hylki af hlátursgasi í glæsibifreið hans.

TENGT EFNI
Sterling handtekinn er hann klessti glæsibifreið sína
Sterling játaði glæfraaksturinn og vörslu á glaðloftinu fyrir dómi í morgun og þá játaði hann einnig að hafa neitað að veita sýni til rannsóknar er lögreglan stöðvaði hann.
Sterling lék síðast með Feyenoord í Hollandi en hann er nú samningslaus eftir að félagið framlengdi ekki við hann í sumar.
Sterling lék síðast með Feyenoord í Hollandi en hann er nú samningslaus eftir að félagið framlengdi ekki við hann í sumar.
