Fotbolti.net
15.09.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Woltemade fær gagnrýni í ítölskum fjölmiðlum - „Gerði allt rangt“

Nick Woltemade.

Nick Woltemade.

Canon

Mynd: EPA

Nick Woltemade fær harða gagnrýni í ítölskum fjölmiðlum eftir 3-2 tap Juventus gegn Sassuolo á sunnudagskvöld. Þessi hávaxni sóknarmaður, sem kom frá Newcastle á láni, kom inn sem varamaður á 60. mínútu.

Það var háspenna í lokin og Sassuolo skoraði sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins.

Það er ekki bara Woltemade sem fær að heyra það heldur einnig franski landsliðsmaðurinn Kolo Muani sem hefur ekki náð að skora í fyrstu fjórum deildarleikjum tímabilsins.
Skoraði flautusigurmark gegn Juventus sem hann „vildi ekki skora“
TENGT EFNI

Skoraði flautusigurmark gegn Juventus sem hann „vildi ekki skora“

„Þurrkurinn heldur áfram hjá Kolo Muani sem hefur farið í gegnum 179 daga. Tilraunin að para hann við Nick Woltemade í síðasta hálftímanum virkaði ekki heldur," segir í umfjöllun La Gazzetta dello Sport.

„Woltemade á í miklum vandræðum með að koma sér inn í dínamík liðsins. Hann virðist áttavilltur í ákvarðanatökum og gerði allt rangt."

Woltemade fékk dauðafæri til að skora í leiknum en nýtti það ekki. Hann fékk 5 af 10 í Tuttosport.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.