Fotbolti.net
15.09.26 - 14:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gatorade bikar Fótbolti.net

Óli Stefán: Þeir hafa unnið tvö 2. deildar lið á útivelli

Álftanes vann sannfærandi sigur á Dalvík/Reyni í síðustu umferð.

Álftanes vann sannfærandi sigur á Dalvík/Reyni í síðustu umferð.

Canon

Mynd: Álftanes

Klukkan 16:30 tekur Selfoss á móti Álftanesi í undanúrslitaleik Gatorade-bikars Fótbolta.net. Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni á laugardag með því að enda í 2. sæti 2. deildar en Álftanes vann 4. deildina hefur einungis tapað tveimur leikjum allt tímabilið.

Álftanes tapaði gegn Hamri, næstbesta liði 4. deildar í deildinni og Lengjudeildarliði Gróttu í Mjólkurbikarnum.

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss, var til viðtals á miðlum félagsins fyrir æfingu liðsins í gær.
„Álftanes hefur gert vel, hefur unnið tvö 2. deildar lið, Fjölni og Dalvík/Reyni, á útivelli. Þannig þetta er mjög verðugt verkefni og verður gaman að takast á við Álftanes á okkar heimavelli."

„Það er sæti í Laugardalsvelli í boði. Við erum í keppni til að gera okkur gildandi, taka þetta alvarlega og vinna. Við stefnum á að klára þetta vel,"
segir Óli Stefán.

Hann var ánægður með stuðninginn sem Selfoss fékk í leiknum gegn KFG á laugardag.

„Ég var hrifinn af mætingunni, fólkinu og samfélaginu í síðasta leik. Það skipti virkilega máli að það var stuðningur; bylgjan lamdi á leikmönnum þegar á þurfti. Ég væri alveg til í að taka það inn í þessa keppni alla leið og klára þetta almennilega," segir þjálfarinn.

Undanúrslitin
16:15 Kormákur/Hvöt-Haukar (Blönduósvöllur)
16:30 Selfoss-Álftanes (JÁVERK-völlurinn)

Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni um helgina.

Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni um helgina.

Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.