Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 13. nóvember 2020 20:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfesta smit Salah - Án grímu í brúðkaupi fyrr í vikunni
Mynd: Getty Images
Mo Salah hefur fengið niðurstöðu úr seinni skimun og er sú niðurstaða einnig jákvæð. Hann er nú í einangrun. Þetta staðfesti egypska knattspyrnusambandið í kvöld.

Egypska knattspyrnusambandið hljóp á sig fyrr í dag þegar greint var frá því að Salah væri með Covid-19 og eyddi sambandið út færslu sinni sem tilkynnti það. Það vildi fá það endanlega staðfest að Salah væri með veiruna.

Salah verður nú í einangrun í tíu daga hið minnsta og missir af tveimur leikjum með egypska landsliðinu auk leiks gegn Leicester með Liverpool. Líklega mun Salah einnig missa af Meistaradeildarleiknum gegn Atalanta í kjölfar leiksins gegn Leicester. Salah er sagður vera einkennalaus.

Salah hefur verið í Egyptalandi frá því Liverpool lék gegn Manchester City síðasta sunnudag. Hann mætti í giftingu bróður síns og veisluhöld í kringum hana áður en hann hitti liðsfélaga sína í landsliðinu.

Þar sást hann bæði með og án grímu og virti ekki fjarlægðatakmörk þegar hann dansaði með öðrum veislugestum.


Athugasemdir
banner
banner