Fotbolti.net
13.11.24 - 09:00
Hafliði Breiðfjörð

Leikjaplan Íslands í Þjóðadeildinni klárt - byrjað í Sviss og Frakklandi

Íslenska liðið hefur leik í Sviss í febrúar. Þær leika líka á EM í Sviss næsta sumar.

Íslenska liðið hefur leik í Sviss í febrúar. Þær leika líka á EM í Sviss næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ísland var á dögunum dregið í riðil með Frakklandi, Noregi og Sviss í Þjóðadeild kvenna sem verður öll leikin á fyrri hluta næsta árs.
Steini Halldórs: Það er hægt að horfa á þetta á tvo vegu
TENGT EFNI

Steini Halldórs: Það er hægt að horfa á þetta á tvo vegu

Leikjaplanið hjá íslenska liðinu er nú klárt.

Ísland byrjar á tveimur útileikjum í febrúar, mæta þá Sviss og Frakklandi ytra.

Í apríl eru svo heimaleikir gegn Noregi og Sviss og heimaleikurinn gegn Noregi er svo í lok maí. Síðasti heimaleikurinn er svo gegn Frökkum í byrjun júní en planið má sjá í heild sinni hér að neðan.

Heimaleikir Íslands fara líklega fram á Kópavogsvelli en Laugardalsvöllur verður ekki klár með nýja hybrid grasið.

föstudagur 21. febrúar
Sviss - Ísland

þriðjudagur 25. febrúar
Frakkland - Ísland

föstudagur 4. apríl
Ísland - Noregur

þriðjudagur 8. apríl
Ísland - Sviss

föstudagur 30. maí
Noregur - Ísland

þriðjudagur 3. júní
Ísland - Frakkland
Leikjaplan Íslands í Þjóðadeildinni klárt - byrjað í Sviss og Frakklandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.